Avalon

16.11.2006 17:41:38 / Palli

Stupid atvik

Í dag er dagur íslenskra tungu eins og fæstir vita. Már rektor í Ms var búinn að lofa öllum skólanum að bjóða honum á Mýrina (sem ég var btw búinn að sjá). En á miðvikudeginum eða deginum fyrir dag íslensku tungunar þá lætur hann okkur vita að hann hafi ákveðið að bjóða bara fyrsta bekknum. Ég læt auðvitað reiði mína í ljós og byrja að tuða þarna eitthvað en samt svona meira í gríni en alvöru. Seinni daginn eða á sjálfum degi íslenskrar tungu, þá mæti ég sprækur í líffræði hjá Gústa félga mínum (sem er frekar sérstkakur kennari). Hann tilkynnir okkur það að við fengjum ekki að fara með á Mýrina, þá læt ég eins og ég hafi ekkert vitað af þessu og fer að tuða með svona gríni, (eins og fyrri daginn) og þar missi ég setningu út úr mér sem ég hefði ekki átt að segja. “afhverju fáum við ekki pening í staðinn” (ósköp saklaus spurning svosem). En síðan koma frímínútur og ég ákveð að legga mig fram á borðið. Í seinn tímanum mætir hann Gústi kallinn og hendir 1000 kr á borðið hjá mér og sagist hafa skrapað þessu saman á milli kennarana, og þeir ákveðið að bjóða mér með. Ég er eitthvað en að vakna þarna vissi ekkert hvað var að gerast þarna, sér rektorinn standa þarni í hurðini eitthvað að stara á mig. Mérr leið alveg geiðveikt kjánalega þarna. Þetta var ekkert smá asnalegt. :P

En núna sit  ég uppi 1000 kr ríkari og hef ekki hugmynd hvað ég ætla að gera með þetta, skila þessu aftur eða eyða þeesu J.


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 01:39:21 / hektor

Kvöldin

13. vika skólans

 

3 vikur eftir, tími til kominn að hver sá sem ekki hefur verið iðinn taki sig taki og leggi allt í sölurnar á endasprettinum ;)

 

Skundað var á 85' ball á fimmtudegi, var það hin fínasta skemmtun, mikið af fólki, sumir dettandi hver um annan þveran, aðrir dansandi, enn aðrir syngjandi með.

 

 

 

 

 

Litadýrð í eldhúsi

 

 

 

 

 

 

 

 

Nösin var kát eftir að Hektor málaði stjörnu á kinnina á honum

 

Matarboð var haldið í Vesturhúsum á laugardagskvöld. Má segja að það verði nokkuð minnistætt kvöld fyrir margra hluta sakir.

 

Farið var í Bónus og verslað. Komu upp smávegis deilur. Guðmundur vildi engar rúsinur og ekkert kex í körfuna :o Tókust á sáttir um síðir en rúsinurnar fengu það hlutskipti að vera geymdar útí kuldanum, engin ástæða að hafa svona óþverra inní húsi :lol:

 

Fyrir matinn er um að gera að þrífa sig og verða tandurhreinn þannig að við Guðmundur skelltum okkur í bað. Þið ykkar sem finnst það einkennilegt þá er það nú ekki ósvipað því að skella sér í pottinn, en eftir það þarf að fara í sturtu hver á eftir öðrum, þarna gátum við slegið tvær flugur í einu höggi.

 

 

 

 

 

Maturinn var góður

 

 

 

 

 

Páll sá um forréttinn og eldaði þessa líka dýrindis blómkálssúpu, Hektor sá um steikina og Guðmunur toppaði matinn svo með vöfflunum.

 

 

 

Menn klæddu sig alveg um síðir. :lol:

 

Hektori tókst að komast í skemmtilegar  rökræður við unga dömu í bænum. Lét ekki bjóða sér það að vera settur í e-h hóp allra karlmanna sem eiga víst að vera með einn hlut í hausnum þegar farið er á djamm. Guðmundur tók uppá því að segja að Hektor væri samkynhneigður. Það kom dömunni ekki á óvart, sagði að drengurinn liti náttúrulega þannig út. Þá varð mönnum skemmt :D

 

Nasi komst í himnaríki þegar komist var ínná ball með Sálinni. Vill meina að það hafi verið e-h mesta upplifun sem hann hafi upplifað, var alveg horfinn dansandi úr sér allt vit, eftir að hafa verið e-h feiminn við að stíga trylltan herbergisdans fyrr um kvöldið með okkur drengjum

 

Hektor

 

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 18:35:35 / hektor

Senn líður að helgi

Kaldir eru dagarnir, annað verður ekki sagt :

Á morgun er 85' ball MS. Ætlum við að mæta þangað galvaskir allir sem einn, að undanskildum honum Jóni sem sér sér ekki fært að mæta. :$  Aldrei hef ég fyrr farið en menn vilja meina að þetta sé  besta ballið. : Býst því við miklu og hef legið undir feld í dag við að reyna að finna mér galla. :o Kominn með leggings ;) Guðmundur Halldór að reyna að plata mig í sundbol :haha: en ég veit til þess að hann´verður í skemmtilegum galla.

Stjarnan sjálf

Ég og Gummi búnir að vera iðnir á fótboltaæfingum hjá ÍR uppá síðkastið. Drengurinn strax byrjaður að æfa með meistaraflokknum :lol:, ég læt 2.flokkinn bara duga :P Jón sleppir þessu alveg.

Þetta verður vonandi bara byrjunin á góðri helgi. Við ætlum að slá upp veislu í Vesturhúsum á laugardag :haha: , borða eitthvað gómsætt og eiga skemmtilegt kvöld. Er það ekki annars málið drengir??

 

 

Kveð að sinni

Hektor


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 19:28:42 / Jónsi

Take on me ..

Fátt hefur verið að gerast síðustu daga, það er kannski einhver smá afsökun fyrir því hvað er langt síðan að það var bloggað .. svo held ég líka að áhugin á því að vera með þessa síðu sé alveg að brenna út. En jæja, ætla að setja eitthvað smá inn.

Síðustu 2 helgar hafa bara verið rólegar, bara verið algjört chill, eins og maður segir á slæmri íslensku.

 85 ballið er á fimmtudaginn, og erum við strákarnir að fara. Það verður án vafa alveg heavy gaman, mikið af fólki sem maður þekkir þar í skólanum .. Gaman að sjá hvernig þetta fer. Annars segi ég lítið, verður bara gaman að dressa sig eitthvað upp og detta vel í það, kominn held ég tími á það.

Guðmundur Jóhanns átti svo afmæli á laugardaginn, varð 18.ára 8) .. til hamingju með það. :haha: Kobbi á líka afmæli svo í dag, til hamingju með það Racko:haha:

Komnar svo niðurstöður úr skoðanakönnunini, niðurstaðan er sú að Hektor er alveg svakalega duglegur að kjósa inná þessari síðu, hann er allavega eini sem ég þekki sem er á þessu máli .. að hárið sé mikilvægara en brjóst og rass á stelpum.

Er hárið mikilvægt á stelpum ?

Játs! Érr skoh sammála Hektor mínum (JÁ!!) 49%
Pjeh, tek undir með Gumma þarna 32%
Er þaggi ? 6%
Get nú ekki verið sammála Hektori samt ... 13%

____

Áfram Hektor !


___

Nenniði svo að kommenta e-ð, bara þannig maður viti að fólk sé að lesa ! 


» 14 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 23:57:12 / Jónsi

Myndir

Við Nasi vorum að setja nýjar myndir inn.

Það eru nokkrar myndir úr bílskúrnum, þarsem við vorum áður enn við fórum á e-ð ball. Ekkert margar myndir, en betra en ekki neitt.

Svo eru video .. hér hliðiná í " vitleysu "

Takið eftir í fyrsta video-inu, þá heldur Hektor að það sé verið að taka mynd og pósar svona nett .. stoppar allur, mér finnst það allavega mjög fyndið :$:haha:

Helvítis síminn hans Kela gerir okkur samt soldið mikið skræka :P .. ég er ekki að fýla það :S

< ---

***

***


» 10 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 18:49:45 / Jónsi

Borgó

Í gær þá var tekin sú ákvörðun að skella sér á þetta líka svakalega ball, sem að Borgarholtskóli hélt.

Vorum fyrir ballið nokkrir strákar bara í skúrnum, bara e-ð að flippa. Menn voru eitthvað að drekka.. og má eiginlega segja að það hafi vægast sagt farið úr böndunum 8|. Þá er ég aðalega að tala um J-Lo og Hektor. Þeir voru ansi grimmir í víninu og þá sérstaklega Hektor, það fór þannig að Gummi J ældi útum allan skúr og yfir mann og annan. Á meðan Hektor hélt sig bara í sínum heimi og lét það ekkert á sig fá að vera allur út ataður í ælu.  :$

Hektor hélt bara áfram að drekka og endaði það með því að ég og Keli þurftum bókstaflega að bera hann heim til sín. Ég held að ég hafi aldrei séð nokkurn mann jafn fullan og hann var.

En jæja, eftir að við vorum búnir að fara með Hektor heim þá fórum við á þetta svokallaða ball. Og má með sanni segja að það hafi vægast sagt verið glatað :). Fórum nánast inn og út, sumum okkar var reyndar hent út, og ákváðum við bara að fylgja þeim, þarsem að það var ekkert sem beið okkar þarna inni. - Held það megi líða langur tími þangað til maður fer aftur á ball hjá þessum skóla.

Það er samt 85 ball hjá MS fljótlega, og reikna ég með því að við förum á það.

______

Annars er bara allt gott að frétta af okkur strákunum.

Nasi er allur að ná sér eftir þessa aðgerð, fékk víst alveg heil 2 spor :S8|.

Svo eru Hektor og Gummi H mjög duglegir að æfa, get því miður ekki sagt það sama :$.

Páll er bara að vinna.

Og ég ..

___

Komnar einhverjar nýjar myndir líka hér inn. Kemur kannski e-ð frá gærkvöldinu seinna :$.

  

Hektor var svolítið fullur :S

Svo má alveg kommenta :$ .. bara þannig að maður viti að einhver sé að lesa þetta !


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 18:26:00 / Gömm

DÍÍÍÍSEEESS!!

.

úff ...

var að koma úr heljarinn aðgerð niðrá domus medica. Hún stóð yfir í c.a. 10 mínútur og voru aldrei góðar lífslíkur frá því að ég steig inní stofuna... vandamálið var stíflaður fitukyrtill sem var búinn að koma sér kyrfilega fyrir, fyrir bakvið hægra eyrað.. mér skilst að hann hafi verið að liggja þar í laumi í þó nokkurn tíma, en uppgötvaði ég tilvist hann aðeins fyrir tilviljun fyrir tæum mánuði. hann var sona 5mm að þvermáli og var orðinn einhvern veginn grænn eða eitthvað rétt í lokin. ástæðan fyrir að ég er að deila þessu með ykkur kæru lesendur er það að innann tíðar mun deyfingin fjara út og sársaukinn hellast yfir mig. Því blogga ég til að gleyma. Kominn með 2 spor þarna núna og kominn smá sviði í þetta. Ég þakka bara fyrir að hafa sloppið lifandi og vona að enginn þurfi að ganga í gegnum þennan hrylling aftur. Venjulegt fólk fær svæfingu og þarf ekki að muna hvað gerðist inní stofunni... en ég ónei.. ég fékk litla deyfingu og þurfti svo að harka af mér restina af aðgerðinni :frown::frown:

Annars var gærdagurinn ágætur, við strákarnir ákváðum að skella okkur á skemmtikvöldið í borgó. Þar var Ingó úr Idolinu að spila og syngja og einhver skítlélegur perra uppistandari sem hélt að hann væri líka svo ógeðslega fyndinn. Magni Rockstar kom svo og kláraði með líka þessa þvílíku framkomu og var hann eina ástæðann fyrir því að maður kom sáttur heim um kvöldið. Hann spilaði klassísku löginn sem voru spiluð í rockstar og svo nokkur óskalög.

Allir að mæta á ballið á morgun. þó að mörgum finnist það ekki líta sérlega vel út þá er um að gera að mæta bara og gera sem best úr þessu:haha: .


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 15:35:01 / Jónsi

Hin fullkomna helgi ? ,, na na na na na

Held að þessi nálgist það allavega, að vera hin fullkomna helgi.

Hófst þannig að við félagarnir fórum bara í bíó, sáum Mýrina sem var alveg roslaega góð. Bara rólegur föstudagur

Svo í gær, fórum við Ægir og Nasi, á broadway þar sem var einhver árshátíð .. var nú alveg drep leiðinlegt þar, en við fengum góðan mat. Og fljótlega eftir að hafa borðað, héldum við í menninguna niðrí bæ. Fórum á Airwaves, sáum Leaves spila sem er ein af mínum allra bestu hljómsveitum, og voru þeir geðveikir eins og við var að búast. Á eftir Leaves stigu The Cribs á svið, þekki lítið til þeirra, en þeir voru alveg ágætir, voru soldið líkir Blink 182. Svo um klukkan 12 þá voru það hinir einu og sönnu Kaiser Chiefs, og voru þeir alveg fáranlega góðir .. :haha:. Sáum við Ægir svo Harrison Ford, eins og kannski margir vita þá er hann hér á landinu núna. Og vil ég meina að við höfum séð hann, þó svo að við tókum kannski ekki eftir honum 8).

Sunnudagurinn byrjaði svona líka vel, Manchester United tók á móti smáliði Liverpool og já eins og við var að búast .. gengu hreinlega frá þeim. :haha: Það er svo eitthvað skólamót í fótbolta á eftir, og er ég víst skráður í lið þar, en ég stór efa það alveg að ég hafi það í mér að mæta.  :$

Ég get ekki sagt annað en ég sé mjög sáttur með mína helgi, þetta er svo sannarlega sönnun þess að maður þarf ekki alltaf áfengi til þess að eiga góða helgi. 

___

Once you asked me what I'm thinking
I lay back and think of England
Do you know the real answer?
I was born to be a dancer
Oh, oh-oh, oh-oh, oh-oh, oh oh oh
Oh, oh-oh, oh-oh, oh-oh, oh oh oh


Ægir þetta ættiru að þekkja :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 01:15:00 / Jónsi

What I would say in your Funeral

Veit eiginlega ekki alveg hvert þessi síða er að stefna, menn orðnir eitthvað áhuga litlir sýnist mér, get ekki sagt að ég sé einhver undantekning ..  ætla nú samt að setja inn litla færslu og við sjáum svo bara hvað gerist með tímanum.

Fórum í bíó í kvöld, og sáum Mýrina. Ég held að það sé ekki hægt að segja annað en þessi mynd sé alveg frábær, það kom sjálfum mér á óvart að hún stóðst eiginlega allar mínar kröfur, og voru þær ekki litlar. Mæli með þessari mynd.

Dóttir mín spurði mig “ Pabbi, afhverju erum við með augu “.

Ég sagði henni að það væri svo við gætum séð.

Þá leiðrétti hún mig,

og sagði að þau væru svo við gætum grátið.

En já eins og áður sagði fórum við í bíó, fórum nokkrir félagarnir. Það er gaman að segja frá því að einn okkar mæti frekar ölvaður á myndina, og var það Páll. Átti nokkrar góðar stundir þarna í bíósalnum. 

Núna eru strákarnir annars að fara að djamma held ég. Ég er enn ekki orðinn maður í það, og ætla að halda mér bara heima :haha:.

Hef þetta ekkert mikið lengra, en ég vona að það komi fleiri blogg núna fljótlega .. eða ekki :$

________

Bless ..


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 20:28:13 / hektor

Kvöld

Sumir eru kátir, aðrir súrir og svekktir, sumir fyndinir :$

Fyrir stuttu síðan áttum ég, Gummi H og Jón eftirminnilegt laugardagskvöld :)

Þessi maður skapaði nýtt trend, sem er gul húfa :D

Gummi með skemmtilegan svip

Haustfríið loksins að bresta á, eitthvað sem maður hefur beðið eftir í smá tíma. Ég bara búinn að ráða mig í vinnu í fríinu, vinna með fatlaða, sem er alveg frekar skemmtilegt og gefandi. Verður rólegt frí hjá mér allavega en ég held samt að bjórkvöld sé málið á morgun :P


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 23:40:23 / Gömm

jæja já

Jæja loksins er kominn tími á nýtt blogg :P

Ég ætla að byrja á því að óska ögra til hamingju með afmælið fyrir hönd okkar avalon félagana, og svo Hjalla og Arnari í leiðinni þar sem að þeir fara bráðum að gangast í fullorðinna manna tölu líka.

Seinasta helgi fór alveg úr böndunum og vil ég hellst forðast að tala um þann atburð í bili :^) en annars er vikan bara búin að vera fín. Fórum í þrusugóðann fótbolta í gær en vorum við allir strákarnir á svæðinu nema tori. En hann er einmitt byrjaður að hitta unga dömu frá hvolfsvelli og á það til oftar en ekki að fara með henni í sund þegar við förum í fótbolta ... þetta lítur náttúrlega mjög illa út með það í huga að B riðillinn í landsbankadeild borgó fer bráðum að keppa og Hektor þarf að vera í góðri þjálfun þegar á völlinn er stigið.

Þið sem hafið verið að fylgjast með seinustu skoðanakönnunn hafið líklega tekið eftir því hver var áberandi efstur.. það mun hafa verið enginn annar en Hektor M. Þar sem að það almúgurinn eruð búinn að tjá þessa ofsafengnu reiði í garð hektors finnst mér það verða okkar skilda að sefa þessa reiði. Við munum þá gera það að takmarki að láta lemja hekka, eða meiða hann á einhvern hátt þannig að þið getið tekið gleði ykkar. Spurningin er bara hvernig við ætlum að fara að.. mér mundi lítast vel á það ef að foldastelpurnar (elísa,þórunn) mundu taka sig aftur til og lúmskra á honum í skiptið fyrir öll, stappa hann duglega... þetta er samt allt í vinnslu og við ætlum að sjá til hvað við getum gert.


Við strákarnir erum líka búnir að vera duglegir við það að hafa auga með tora þegar hann fer svona úta lífið, eltum hann á röndum og sjáum til þess að ekkert ósiðlegt gerist á milli hans og dömunnar, sem dæmi má nefna það að við höfum fest bílinn hans tora inni, klifrað uppá svalir hjá honum, villt á okkur heimildir og fleira.;)

Svo á morgun er seinasti dagurinn fyrir miðannarleyfið.. við verðum að taka okkur saman og gera eitthvað skemmtilegt :o


» 22 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 09:03:55 / Palli

Nokkuð góður listi

Þú veist að það er árið 2006 ef..... 
 
1. Þú ferð í partý og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
 
2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.
 
3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .
 
4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.
 
6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.
 
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.
 
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
 
9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.
 
10. Þú virkilega leist tilbaka til að athuga hvort þar væri númer
fimm.
 
11. Svo hlærðu af heimsku þinni.
 
12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar. EF þú féllst fyrir þessu ...

Aha ekkert svona ! þú féllst fyrir þessu


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 02:47:28 / Jónsi

I've found a way to make you smile

Heilsuhelgi sagði Hektor,

Ég vil meina að ég hafi svo sannarlega staðið undir þeim orðum.

Má eiginlega segja að þetta hafi allt hafist á fimmtudaginn. Þá var bjórkvöld hjá borgó, sem að við fórum margir vinirnir á, ég stoppaði reyndar stutt. Við Palli vorum ekki alveg í rétta gírnum, og fórum bara að rúnta. Veit nú samt að strákarnir skemmtu sér allir mjög vel. Nasi t.d náði sér í 2 skvísur skilst mér.  Vel á minnst þá voru 3.afmælisbörn á fimmtudaginn, voru það þau Valur, Högni og Sigurást, til hamingju.

En strax eftir skóla í gær, fórum við í bolta í Egilshöllini sem að var mjög hressandi. Vorum svo bara e-ð í tjillinu á föstudeginum. Held að enginn okkar hafi gert neitt. Ég t.d var farinn að sofa um svona 8 eða eitthvað álíka.

Í dag fórum við Hektor svo í Esjugöngu, og var hún alveg frábær. Hektor fékk panic attack þegar við vorum að nálgast toppinn, drengurinn var næstum farinn að gráta og var ófeiminn með að játa það. Sama hvað ég reyndi að draga manninn með mér upp þá gekk ekkert. Gekk hvorki upp né niður bókstaflega, hann þorði varla niður um tíma.- Ætla ekkert að vera skrifa meira um þennann atburð þó svo að hann hafi vægast sagt verið skemmtilegur. En ég fór upp á topp, Hektor beið fyrir neðan klettana á meðan, svo lá leiðin bara niður. Og þurfti ég að bíða eftir Tora í svona 20.mín niðri þarsem hann var alveg frekar lengi niður.

Kannski komið nóg af Esju gönguni í bili, verður samt mikið talað um þetta í skólanum, voru margir í fjallinu að tala um strákinn sem var vælandi við toppinn.

Eftir Esjuna fór ég að vinna uppí húsi hjá J-lo.

Svo erum við Gummi jó bara búnir að vera spakir, fórum útá videoleigu til Kötu vinkonu hans og fengum þar fría spólu og nammi. En ég veit til þess að Gummi H og Tori eru að djamma núna.

__

 

Esjan var fín.

Championship Manager er kominn aftur í tísku

- Bjórkvöldin líka

Ný vika að fara að hefjast, verður eflaust eitthvað gert sniðugt. - ÍR æfingar ! :haha: 

______

Bæbæ


» 11 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 12:27:05 / hektor

Helgin

Helgin er senn að verða búin en sitthvað var samt brallað

Gæsin og Alexandra spiluðu í þessari líka fínu brúðkaupsveislu á laugardaginn

Þau spiluðu líka í kirkjunni. Gummi á gítar og Alexandra söng. Stóðu þau sig með stakri prýði.

Ekki má gleyma því að Særún og Thelma sungu líka í veislunni

Ég þakka kærlega fyrir mig


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 00:52:05 / hektor

Lífið

Lífið hefur verið ansi gott uppá síðkastið.

 Ég vil byrja á því að rakka yfir lygamörðinn sem segir okkur hafa beilað á föstudagskvöldið :S, Jón við skorum á þig að koma með okkur út á lífið en ekki bara fara heim og leigja spólu á miðnætti., það bara gengur ekki.... Helgin var afspyrnu fín og entumst ég og Gummi lengur en allir bæði kvöldin, enda alvöru menn 8).

Það að segja “Klárlega” er samt ekki málið í dag víst.:lol: Fékk að heyra það frá einni stelpunni á föstudagskvöldið, henni fannst líka svoldið töff að vera 87 model :S, gæsin ákvað að standa með vini sínum og hrauna yfir hana sem hann gerði með hljóðum og leikrænum tilþrifum :lol:.

 Á laugardagskvöldið var haldið í salapartýið í skeifunni. Allt troðið og aragrúi af e-h börnum þarna fyrir utan:evil:, held að allir viti hvernig þessi samkoma endaði. Stefnan bara tekin á bæinn þegar slagsmálin voru að hefjast. Þar var dansað úr sér líftóruna og minnstu munaði að hún hefði verið kreist úr manni þegar einn gaur hætti ekki að spyrja okkur hvort við hefðum verið að hlægja að sér.

Gummi H ákvað að skella sér á Bloodhound gang í kvöld, við hinir að undanskildum Páli fórum í sund og ís þar sem kom í ljós að Hrafnkell er í megrun, sem er alltof fyndið :D.

Jón ætlar að styðja Magna í kvöld, vonum að drengurinn komist í úrslit, þá verður skellt upp teiti og stutt okkar mann.

Menn eru alltof bjatsýnir fyrir leikinn á morgun, Ísland-Danmörk. Ég ætla að skella mér en ég verð nú að viðurkenna að ég er ekkert of bjartsýnn, segi 1-3.

Svo fer að styttast í helgina, sem verður bara nokkuð góð held ég, frí í skólanum á föstudegi og Afmæli, lokapartý, gifting og nóg að gerast, svo er Gummi að tala um sumarbústað, þannig að allt stefnir í glæsta helgi.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2